D10 Suma SmartDose 1,4L
Sótthreinsandi hreinsiefni
Sótthreinsandi hreinsiefni til daglegra nota fyrir eldhús og mötuneyti. Hefur mjög góða hreinsi- og sótthreinsivirkni. Má fara á flest yfirborð þ.m.t. á ál. D10 vinnur vel á fitu og þornuðum matarleifum.
Innbyggt SmartDose® skömmtunarkerfi auðveldar blöndun í úðaflöskur og fötur.
Helstu eiginleikar
-
Hreinsar og sótthreinsar.
-
Vinnur á fitu og þornuðum matarleifum.
-
Virkt gegn fjölbreyttum örverum samkvæmt notkunarleiðbeiningum.
-
Virkar við mismunandi hörku vatns.
-
Innbyggð skömmtun fyrir úðaflöskur og fötur.
Notkunarsvið
Til þrifa og sótthreinsunar á vatnsþolnum yfirborðum í eldhúsum og matvælafyrirtækjum, svo sem vinnuborðum og matvælasnertiflötum.
Blöndunarleiðbeiningar
-
Úðaflaska: Fyllið 750 ml úðaflösku með vatni. Snúið gula skömmtunarhausnum að flöskutákninu, dragið hann upp og þrýstið alveg niður einu sinni. Hristið flöskuna varlega.
-
Fata: Byrjið að fylla fötuna með vatni. Snúið skömmtunarhausnum að fötutákninu, dragið hann upp og þrýstið alveg niður einu sinni. Fyllið fötuna að 7 lítrum.
Notkunarleiðbeiningar
-
Fjarlægið sýnileg óhreinindi.
-
Berið lausnina á og hreinsið með klút eða bursta.
-
Látið virka í 5 mínútur og haldið yfirborðinu blautu allan snertitímann.
-
Skolið vandlega með hreinu vatni og látið loftþorna.
Blandaða lausn í úðaflösku má nota í allt að 7 daga. Hreinsið og þurrkið flöskuna fyrir áfyllingu.
- pH-gildi: 10,5-11,0
- Hver flaska dugar í 140x áfyllingar (750 ml úðabrúsa) eða 20 x áfyllingar (5L fata)
Notist á öruggan hátt. Lesið ávallt merkimiða og vöruupplýsingar fyrir notkun og fylgið leiðbeiningum á umbúðum.