Karfa

Pexels Skylar Kang 6375558

Örugg meðhöndlun matvæla, þrif og sótthreinsun

Hvernig stuðlum við að öryggi matvæla og góðu hreinlæti í eldhúsinu?

Á þessu námskeiði er farið yfir helstu þætti öruggrar meðhöndlunar matvæla og mikilvægi markvissra þrifa og sótthreinsunar.

Áhersla er lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir gegn krossmengun, rétta notkun hreinsiefna og áhalda, sem og örugg vinnubrögð við dagleg störf.

Á námskeiðinu er farið yfir:

  • Örugga meðhöndlun matvæla: Krossmengun, kælingu og hitun matvæla og hlutverk þrifa og sótthreinsunar í matvælaöryggi.
  • Forvarnir gegn krossmengun: Vinnubrögð sem draga úr hættu á að mengun berist milli matvæla, áhalda og yfirborða.
  • Hreinsiefni og áhöld: Helstu efni og áhöld í notkun, val þeirra og rétta meðhöndlun.
  • Þrifaferli og sótthreinsun snertiflata: Skipulag og framkvæmd þrifa með áherslu á fleti sem oft eru snertir eða komast í snertingu við matvæli.
  • Efnaslys og forvarnir: Örugga meðhöndlun hreinlætisefna, fyrirbyggjandi aðgerðir og fyrstu viðbrögð við efnaslysum.
  • Persónulegt hreinlæti: Mikilvægi góðs persónulegs hreinlætis við meðhöndlun matvæla.

Fyrir hverja?

Námskeiðið hentar starfsfólki sem vinnur við matvæli eða þrif í stóreldhúsum, á veitingastöðum, í skólum og leikskólum og í annarri matvælastarfsemi.

Markmið námskeiðs

Að þátttakendur öðlist betri þekkingu á matvælaöryggi, þrifum og sótthreinsun og geti nýtt hana til að stuðla að öruggari vinnubrögðum á sínum vinnustað.

Lengd námskeiðs

Um 1 klukkustund.

Verð

12.900 kr. án vsk.

Skráning á námskeið

Ekki er til valinn fjöldi af valdri vöru